← Kjarnhiti.is
Kjarnhiti

Hamborgarhryggur

Kjarnhiti fyrir hamborgarhrygg: 68–70° fyrir safaríkan hrygg, 72° fyrir fullkomna eldun. Suðutími, ofnhiti og hvíld.

Kjarnhiti

Safaríkur – 68–70°

Fullkomin eldun – 72°

Vel eldaður – 75°

Hvíld:
Hvíla undir álpappír í 10–15 mínútur áður en hann er skorinn.
SósurSósa með þessu →MeðlætiMeðlæti með þessu →
Auglýsingapláss
Auglýstu á Kjarnhiti.is

Fólkið hér er með kjöt í ofninum og hitamæli í hendinni. Betri tímasetning er ekki til.

Bara 9.000 kr. á mánuði – ódýrara en ein nautalund.

Um 20.000 grillarar á ári. Allir svangir.

Hafðu samband →

Svona eldar þú

Hamborgarhryggur er þegar saltaður og reyktur, svo markmiðið er að hita hann í gegn án þess að þurrka hann.

1. Sjóðið hrygginn rólega í vatni, eða setjið beint í ofn ef hann er forsoðinn.

2. Stingið kjarnhitamæli í þykkasta hlutann, án þess að snerta beinið.

3. Penslið gljáa yfir síðustu 15–20 mínúturnar og hækkið hitann til að fá stökka skorpu.

4. Takið hann út 1–2° undir markhita – hitinn heldur áfram að hækka í hvíldinni.

Algengar spurningar

Hver er réttur kjarnhiti fyrir hamborgarhrygg?

68–70° gefur safaríkan hrygg. 72° er klassísk jólaeldun.

Þarf að sjóða hamborgarhrygg?

Fer eftir vörunni – lesið umbúðirnar. Margir hryggir í dag eru forsoðnir og þurfa aðeins ofninn.

Sjá kjarnhita fyrir allt kjöt →