← Kjarnhiti.is
Kjarnhiti

Kalkúnn

Kjarnhiti fyrir kalkún: 70° í bringu og 75–80° í læri. Svona eldar þú heilan kalkún án þess að hann þorni.

Kjarnhiti

Bringa – 70°

Læri – 75–80°

Kalkúnabringa ein og sér – 68–70°

Hvíld:
Hvíla heilan kalkún í 20–30 mínútur undir álpappír.
SósurSósa með þessu →MeðlætiMeðlæti með þessu →
Auglýsingapláss
Auglýstu á Kjarnhiti.is

Fólkið hér er með kjöt í ofninum og hitamæli í hendinni. Betri tímasetning er ekki til.

Bara 9.000 kr. á mánuði – ódýrara en ein nautalund.

Um 20.000 grillarar á ári. Allir svangir.

Hafðu samband →

Svona eldar þú

1. Látið kalkúninn ná stofuhita í um klukkustund áður en hann fer í ofninn.

2. Mælið í þykkasta hluta bringunnar og í lærinu, án þess að snerta bein.

3. Ef bringan nær 70° á undan lærinu, setjið álpappír yfir bringuna.

4. Kalkúnn er alltaf borðaður gegnumsteiktur.

Algengar spurningar

Hver er kjarnhiti fyrir kalkún?

70° í bringu. Lærið má fara í 75–80° – þá verður það meyrara.

Hversu lengi þarf kalkúnn að hvíla?

20–30 mínútur fyrir heilan fugl. Safinn sest og kjötið verður auðveldara að skera.

Sjá kjarnhita fyrir allt kjöt →