← Kjarnhiti.is
Kjarnhiti

Nautalund Wellington

Kjarnhiti fyrir Wellington: takið út við 52° og látið hvíla í 10 mínútur. Fullkomin bleik nautalund í smjördeigi.

Kjarnhiti

Fullkomin eldun – takið út við 52°

Eftir hvíld – um 55–56°

Hvíld:
Hvíla í 10 mínútur – hitinn heldur áfram að hækka um 3–4°.
SósurSósa með þessu →MeðlætiMeðlæti með þessu →
Auglýsingapláss
Auglýstu á Kjarnhiti.is

Fólkið hér er með kjöt í ofninum og hitamæli í hendinni. Betri tímasetning er ekki til.

Bara 9.000 kr. á mánuði – ódýrara en ein nautalund.

Um 20.000 grillarar á ári. Allir svangir.

Hafðu samband →

Svona eldar þú

1. Brúnið nautalundina á öllum hliðum og kælið áður en hún er vafin.

2. Stingið kjarnhitamæli inn um endann svo gat sjáist ekki í deiginu.

3. Bakið þar til kjarnhiti nær 52°.

4. Hvílið í 10 mínútur áður en skorið er.

Algengar spurningar

Hver er kjarnhiti fyrir Wellington?

Takið út við 52°. Eftir hvíld endar hún í um 55–56°, fallega bleik.

Af hverju verður deigið blautt að neðan?

Of mikill raki úr sveppafyllingunni. Steikið sveppina vel og kælið allt áður en vafið er.

Sjá kjarnhita fyrir allt kjöt →